
TÖLVUPÓSTAR
Tölvupóstur er ein áhrifaríkasta markaðsaðferð sem íslenskir sölu- og markaðsstjórar nýta sér. Engin önnur markaðsleið skilar hærri ávöxtun hlutfallslega eins og rétt notkun tölvupóstssamskipta gerir. Ástæðan er einfaldlega sú að hægt er að snerta tugþúsundir viðskiptavina á nokkrum mínútum og framkalla með því viðbrögð sem leiða af sér sölu og nýjar tekjur.
Markaðsfræði sem byggir á á tölvupóstssamskiptum hefur aldrei verið jafn öflug og hún er í dag en hún krefst einnig aga og réttra vinnubragða. Það er í stuttu máli þrjú atriði sem verða að vera til staðar til þess að tölvupósturinn þinn skili tilsettu markmiði:
-
Innihalda ávinning fyrir þann sem móttekur póstinn
-
Ávinningurinn þarf að vera viðeigandi. Markhópagreining er lykilatriði hér!
-
Hæfileg tíðni þarf að vera til staðar til að pirra ekki viðskiptavini þína. Gott ráð er einfaldlega að spyrja hve oft viðkomandi vill vera í samskiptum við fyrirtækið þitt.
Sjá hér hvernig hægt er að nýta Zenter skráningarsíður við uppbyggingu á markhópagreindum gagnagrunnum.
